Lýsing

Norröna tamok Gore-Tex Pants M’s Camelflage

Hlífðarbuxur hannaðar fyrir skíðamennsku hvort sem er skíði eða bretti innan og utan brauta. Þessar buxur eru úr úrvals GORE-TEX® efni sem er endingargott og mjög vatnshelt með hámarks öndun (RET minna en 9) og alveg vindþétt. Aðalefnið er 2ja laga ePE Gore-Tex® (án PFC) framleitt úr 150D endurunnu pólýester efni sem vegur 180 gr/m2. Á neðsta hluta skálma eru styrkingar sem eru úr 450D Vectran efni sem vegur 255 gr/m2 sem eykur endingu buxnanna því það mæðir mikið á þessum svæðum. Helstu eiginleikar eru: Hægt að renna niður hliðum til að auka loftflæði, Vectran styrking neðst á skálmum til að verja slitfleti, tveir renndir vasar framan á lærum og innan í öðrum þeirra er netvasi fyrir síma, tveir vasar fyrir hendur, snjóvarnir neðan á skálmum. Hægt er að bæta við aukalega smekk og axlarböndum frá Norröna.

Nánari upplýsingar á heimasíðu Norröna.