Lýsing

POC Fovea Mid Hydrogen White/Partly Sunny Blue

Fovea Mid er minni útgáfa af Fovea gleraugunum sem eru sennilega vinsælustu skíðagleraugu POC frá upphafi. Henta vel fyrir unglinga og þá sem eru með smágert andlit. Linsan er hönnuð fyrir mikinn hraða í keppnisskíðun og gefur skarpa sýn hvort sem er í keppni eða frískíðun. Kúpt linsa og víður rammi gefur óhindraða sýn sem tryggir að þú sjáir öll smáatriði í brautinni fyrir framan þig jafnvel á miklum hraða. Minni hæð Fovea Mid gleraugnanna hentar betur fyrir minni andlit og passar fullkomlega við POC junior keppnishjálmana. Þriggja laga púðinn meðfram gleraugunum hefur þægilega viðkomu við húð.

Stærð/gerð: One Size

Nánari upplýsingar á heimasíðu POC.