Lýsing

Norröna fjørå Gore-Tex Pro Jacket M’s Caviar

Þessi Gore-Tex skel er hönnuð fyrir fjallahjólreiðar en virkar einngi í allskyns hjólreiðar eða aðra útivist þar sem þörf er á góðri vatnsvörn. Jakkinn er framleiddur út fyrsta flokks GORE-TEX® PRO efni sem andar vel og er vatnshelt (28.000 mm) og alveg vindhelt. Efnið er 3ja-laga 70D GORE-TEX® PRO sem hefur góða öndun (RET 6) framleitt úr endurunnu næloni (40d) sem vegur 128 g/m2 og hefur einstaklega góða endingu. Efnið tryggir endingargóða og áreiðanlega veðurvörn með hámarks öndun sem er fullkomin fyrir mikla hreyfingu. Helstu eiginleikar eru meðal annars veðurhlíf yfir handarbök, góð hetta sem hentar yfir hjólahjálm, hægt að rúlla hettunni upp, endurskin, hægt að opna jakkann undir höndum og að framan til að auka loftflæði, brjóstvasi og einn vasi að innanverðu.

Nánari upplýsingar á heimasíðu Norröna.