Lýsing

Apidura Expedition Handlebar Pack (14L)

Tilvalinn fyrir léttan, þjappanlegan búnað, Expedition Handle Bar Pack er handhægur fyrir langar hjólaferðir eða jafnvel daglega ferð í vinnuna.

Taskan festist við stýrið með styrktum ólum sem tryggja stöðugleika og koma í veg fyrir núning. Tvöföld rúllulokun heldur innihaldinu öruggu og leyfir sveigjanlega pökkun.

Fáanleg í tveimur stærðum: 14L og 9L. Hægt að stækka hana með Expedition Accessory Pack sem er handhægur vasi fyrir mat og raftæki.

Nánari upplýsingar á heimasíðu Apidura.