Það er okkur hjá Peloton mikil ánægja að bjóða vörur frá sænska fyrirtækinu Hestra.
Árið 1936 var fyrirtækið Hestra stofnað í samnefndum bæ í sænsku Smálöndunum. Frá upphafi hefur fyrirtækið sérhæft sig í framleiðslu á hönskum og vettlingum. Fyrstu árin voru vörunar hugsaðar fyrir skógarhögg og erfiða útivinnu en fljótlega hófst framleiðsla á hönskum og -vettlingum fyrir skíðaiðkun og aðrar vetraríþróttir sem hefur verið sérstaða þeirra til dagsins í dag.
Í dag framleiðir Hestra yfir 2 milljónir af hönskum og vettlingum í yfir 400 mismunandi útgáfum á hverju ári. Okkar markmið er að bjóða sem best úrval af vörum frá Hestra bæði fyrir vetur og sumar. Fyrsta sendingin er að lenda hjá okkur og má sjá úrvalið í vefversluninni okkar https://www.peloton.is/brand/hestra . Við erum að sjálfsögðu með allar vörurnar í versluninni Klettagörðum 23 þar sem þú getur komið og mátað.
Hlökkum til að sjá þig.
