Lýsing
Norröna senja warm1 Hood W’s Flamingo
Flíspeysa hönnuð fyrir utanvegahlaup en virkar vel í allskonar útivist. Peysan er framleidd úr léttu warm1 sem er endingargott, þornar fljótt og gefur góða einangrun miðað við vigt. Aðalefnið er endurunnið pólýester 140g/m2 með UPF 50+ sólarvörn. Í baki og undir ermum er notað léttara efni sem loftar betur en það er endurunnið pólýester 127 g/m2 þynnra með UPF 30+ sólarvörn. Bæði efnin eru með HeiQ Fresh FFL lyktarvarnarmeðferð. HeiQ Fresh FFL er lífræn amínósykurfjölliða án silfurs og án sýkladrepandi efna. Það fjarlægir fitu og prótein úr svita og útilokar þar með getu baktería til að vaxa og dregur því úr lykt. Helstu eiginleikar: hetta, brjóstvasi, hálfur rennd að framan. Peysan er aðsniðin.
Nánari upplýsingar á heimasíðu Norröna.